3.03.2015

Jóhannesarguðspjall

Jesús yrkir í sandinn


Guðspjall Jóhannesar er eðlisólíkt hinum þremur eins og alþekkt er. Það liggur bæði í stíl og frásagnarefni. Margt er hér ekki sem allir hinir fjalla um. Engin er hér fjallræða, engin lokakvöldmáltíð, þó brauðið og vínið fái sína helgun. Mun færri dæmisögur og kraftaverk.

Og miklu meiri „guðfræði“ – ítarlegri útlistanir á orðum og gjörðum söguhetjunnar. Manni líður stundum eins og textinn sé önnur hliðin á rökræðu. Sem skýrir að einhverju leyti hvað frásagnarmátinn er stundum skrítinn og stirður. Hér eru málalengingar og stagl, en af öðru tagi en staglið í Gamlatestamentinu. Þetta er grískt stagl en ekki hebreskt. Meiri Platón – minni Móses.

Margt er þó fallegt og mikilvægt hjá Jóhannesi. Hin glæsilega byrjun, „Í upphafi var orðið …“. Og sagan um  bersyndugu konuna – sem er bara hér – er eitt skýrasta dæmið um það sem mætti kalla „kristin gildi“, þó vafalaust megi finna dæmi um þennan þanka hjá eldri  spekingum og þeim sem engin kynni hafa haft af Jesú.

En þetta er bara svo flott saga. Besta saga heimsins um hræsni. Og öflug lykilsetning: „Sá yðar sem syndlaus er kasti fyrsta steininum.“ Betra á íslensku en ensku (af því við eigum orðið „syndlaus“), sem gleður mann. Og þetta er ekki dæmisaga – þarna grípur Jesús inn í atburðarás samtímans á áþreifanlegan, en samt ekki yfirnáttúrulegan hátt. Hver sem er hefði getað gert þetta – sagt þetta. En það var hann sem sagði það.

Og enn og aftur talar Jesús gegn Lögmálinu. Þó hann segi líka að ekki stafkrókur þess sé fallinn úr gildi. Skömmu eftir glímuna við grjótkastarana skammar hann menn fyrir að hlýða því ekki - hræsni aftur skotmarkið:

Gaf Móse yður ekki lögmálið? Samt heldur enginn yðar lögmálið. Hví sitjið þér um líf mitt? (7.19)

Það má segja að það sé mótsagnakennt. En það má líka segja að það gefi siðferðilegt andrými. Og þetta eru sem því svigrúmi nemur hæpnari leiðarvísir. En svo má líka segja að hæpinn leiðarvísir sé þó skárri en hið afdráttarlausa Lögmál, með öllum sínum grýtingum og glórulausu humarhatri.
Eitt skrítið smáatriði fangaði athygli mína innan um kunnuglegu orðin í kaflanum um þá hórseku og wannabe-böðla hennar: En Jesús laut niður og skrifaði með fingrinum á jörðina.
Og þegar þeir héldu áfram að spyrja hann rétti hann sig upp og sagði við þá: Sá yðar sem syndlaus er kasti fyrstur steini á hana. Og aftur laut hann niður og skrifaði á jörðina. (8. 6-8 - leturbreyting mín) Og allt í einu verður ein stórkostlegasta atvikssaga heimsins brotinu skrítnari og mannlegri og þar með stærri. Hvað var hann að skrifa? Er þetta ekki eina dæmið um að Jesús skrifi yfirhöfuð? Hvaða áhrif hafði það að hann var að skrifa á þá sem hann var að tala við? Sjáið þetta fyrir ykkur. Voru það þessi ævintýralegu „svalheit“ sem björguðu stúlkunni, burtséð frá stórbrotnum röksemdunum? Svona lið er nú ekki vant að stjórnast af snjallyrðum. Kraftaverkin eru fá, en lengur dvalið við og lagt út af og rætt um hvert og eitt. Hér er vatni breytt í vín og Lasarus reistur frá dauðum. Og blindir fá sýn. Allt þetta stuðar Gyðingana. Og talandi um Gyðingana. Jóhannesarguðspjalli er oft lýst sem andsemitíska guðspjallinu. Þar erum við samt að tala um stigs- en ekki eðlismun. Það er alveg skýrt líka hjá MML að rómversku yfirvöldin höfðu nákvæmlega EKKERT við Krist að athuga. Öðru máli gegnir um keppinauta hans um hylli almennings í Gyðingaelítunni. Hér hafa þýðendurnir ákveðið að hjálpa okkur smá. Jóhannes hefur nefnlega skrítna áráttu til að skrifa „Gyðingar“ þegar hann augljóslega meinar „Farísear“ eða „æðstupresta“. Svolítið eins og að skrifa „Garðbæingar“ þegar maður meinar „Sjálfstæðismenn“. Í nýju útgáfunni er gjarnan sett „ráðamenn“ og „Farísear“ í staðinn fyrir G-orðið, og tekið fram neðanmáls að orðrétt sé þetta „Gyðingar“. Þetta er alveg skiljanleg ákvörðun en orkar stundum tvímælis, Virkar fínt þegar „Gyðingar“ táknar augljóslega Farísea eða aðra forráðamenn. T.d. hér: Þetta sögðu foreldrar hans af ótta við ráðamenn Gyðinga (9. 22) Þar sem upphaflega stendur „af ótta við Gyðinga“, þó umrædd kjarnafjölskylda sé það líka – sem er ruglingslegt. En undarlegt verður þetta annarsstaðar: Menn tóku aftur upp steina til að grýta hann. (10. 31) Hér er „menn” sett inn fyrir „Gyðingar“ eins og það sé ekki augljóst að þeir sem grýta séu Gyðingar – þetta gerist í musterinu. Óþarfa viðkvæmni að leyfa því ekki einfaldlega að standa, þó „menn“ fari í sjálfu sér ekkert illa þarna. En það yrði langt og tafsamt verk að laga og nútímavæða stílinn á öllu ritsafninu. Á hinn bóginn er „Gyðingar“ látið halda sér þar sem sag er frá einhverju „jákvæðu“, t.d. þegar talað er um fólk sem hlýðir á Jesú og trúir honum. Ágætis prinsipp hjá þýðendunum – en aðeins of mikil PC-lykt af útfærslunni. Því þetta er ekki PC-texti. Dæmi um það er t.d. þessi eftirmáli kraftaverksins með Lasarus, sem lítt er haldið á lofti: Þá ákváðu æðstu prestarnir að taka einnig Lasarus af lífi því vegna hans sneru margir Gyðingar baki við þeim og fóru að trúa á Jesú. (12.10–11) Ekki er sagt frá því hvort þeir létu verða af þessum áformum sínum. Það væri samt dæmigert. Og við tökum eftir að hér er orðinu „Gyðingum“ leyft að standa þó því sé strangt tekið ofaukið, enda birtast þeir þarna í jákvæðu ljósi frá sjónarhóli kristninnar. Í Jóhannesarguðspjalli er engin fæðingarsaga sögð. Móðir Krists kemur tvisvar við sögu, en er aldrei nefnd á nafn sýnist mér. Sem er reyndar erfitt að fullyrða, svo mjög sem Maríur koma hér við sögu og lítt hirt um að greina milli þeirra. Tvisvar er hann kallaður „Jesús sonur Jósefs“, já og „bræður hans“ koma við sögu. Á hinn bóginn er mun sterkar að orði kveðið hér en annarsstaðar að Jesú sé sonur Guðs – bæði af höfundi og ekki síður aðalsöguhetjunni. Við hittum Jesúm fyrst um leið og Jóhannes skírari, sem er í stóru hlutverki í upphafi guðspjalls nafna síns, þó ekki sé hér sögð sagan af dauða hans eins og hjá sumum hinna. Hann er meira að segja í hlutverki smalans fyrir arftaka sinn: Daginn eftir var Jóhannes þar aftur staddur og tveir lærisveinar hans. Hann sér Jesú á gangi og segir: „Sjá, Guðs lamb.“ Lærisveinar hans tveir heyrðu orð hans og fóru á eftir Jesú. (1. 35–37) En þó Jóhannes sé í stóru hlutverki í guðspjalli nafna síns þá er sagan af dauða hans ekki sögð. Ég hef nokkrum sinnum í þessum NT-pistlum sagt frá ljúgvitninu sem segir Krist hafa raupað af því að geta reist musterið úr rústum á þremur dögum, sem sumir guðspjallamannanna segja vera það sem hann var dæmdur til dauða fyrir. Ja, ljúgvitni? Kannski var hann einfaldlega viðstaddur þegar Jesús átti þessi orðaskipti við ráðamenn Gyðinga: Ráðamenn Gyðinga sögðu þá við hann: „Hvaða tákn getur þú sýnt okkur um að þú megir gera þetta?“ Jesús svaraði þeim: "Brjótið þetta musteri, og ég skal reisa það á þrem dögum.” (2. 18–19) Á hinn bóginn er ekkert meira um þetta rætt og þessi orð verða ekki til að sakfella Krist í þessari útgáfu sögunar. Framhaldið er reyndar líka forvitnilegt: En Jesús var að tala um musteri líkama síns. Þegar hann var risinn upp frá dauðum, minntust lærisveinar hans að hann hafði sagt þetta, og trúðu ritningunni og orðinu sem Jesús hafði talað. (2. 21–22) Svona klausur með eftiráskýringum eru stíleinkenni á guðspjallinu. Þetta er afleitur frásagnarmáti. Svolítið eins og fjögurra ára barn að segja brandara sem það skilur ekki. Já og svo er þetta alveg glötuð eftiráskýring. Þó að óraunsæjar byggingaráætlanir verði ekki hornsteinn málareksturs gegn uppreisnarseggnum í þessari bók, eru áætlanir Farísea hvergi tíundaðar jafn afdráttarlaust og nákæmlega og hjá Jóhannesi: Margir Gyðingar, sem komnir voru til Maríu og sáu það, sem Jesús gjörði, tóku nú að trúa á hann. En nokkrir þeirra fóru til farísea og sögðu þeim, hvað hann hafði gjört. Æðstu prestarnir og farísearnir kölluðu þá saman ráðið og sögðu: „Hvað eigum vér að gjöra? Þessi maður gjörir mörg tákn. Ef vér leyfum honum að halda svo áfram, munu allir trúa á hann, og þá koma Rómverjar og taka bæði helgidóm vorn og þjóð.“ En einn þeirra, Kaífas, sem það ár var æðsti prestur, sagði við þá: „Þér vitið ekkert og hugsið ekkert um það, að yður er betra, að einn maður deyi fyrir lýðinn, en að öll þjóðin tortímist.“ Þetta sagði hann ekki af sjálfum sér, en þar sem hann var æðsti prestur það ár, gat hann spáð því, að Jesús mundi deyja fyrir þjóðina, og ekki fyrir þjóðina eina, heldur og til að safna saman í eitt dreifðum börnum Guðs. frá þeim degi voru þeir ráðnir í að taka hann af lífi. (11. 45–53) Aftur – hverskonar bjánastill er þetta? En áhugavert að höfundur bókarinnar hefur aðgang að leynifundum óvinanna. Við vitum öll hvar þetta plott endar - og það er alltaf jafn skrítin og mótsagnakennd saga. Þetta með svikin er alltaf jafn illskiljanlegt, og eyðurnar í því hvað nákvæmlega bæði Gyðingar og Rómverjar hafa út á manninn að setja frekar óskýrt. Það er samt alveg skýrt – og líka í hinum spjöllunum - að það er fyrst og fremst hin Gyðinglega yfirstétt sem fær Jesús líflátinn. Þetta segir hann við Pílatus: Þú hefðir ekkert vald mér ef þér væri ekki gefið það að ofan. Fyrir því ber sá þyngri sök sem hefur selt mig þér í hendur. (19. 11) Sem er auðvitað svolítið kyndugt. Að forlögin bindi hendur Pílatusar en ekki Kaífasar og félaga. Reyndar má kannski hengja þetta á þann rauða þráð í guðspjöllunum og Jóhannesi sérstaklega, að hér séu máttarvöldin einfaldlega að manipúlera framvinduna til að spádómar rætist. Og Pílatus þá peð í því tafli. En á það þá ekki við um alla gerendur sögunnar? Heródes, Kaífas, Júdas og Annas? Og þá fráleitt að líta á þá sem seka um neitt heldur. Eðli forlagatrúarinnar er mótsögnum hlaðið og skiljanlegt að menn vilji ekki tala skýrt um það. Pílatus er áhugaverð persóna, með sína áreynsluþrungnu tilraunir til að þyrma Jesú og grimmilegt afdráttarleysið þegar þær mistakast. Það er hér sem hann spyr son Guðs „Hvað er sannleikur?“ og fær engin svör. Í upphafi var orðið, en að lokum er það þögnin. Það er áhugaverður snúningur hér á einu smáatriði, háðungarskiltinu á krossinum. Aðeins Jóhannes orðar það nákvæmlega eins og okkur er tamt að sjá það fyrir okkur: „Jesús frá Nasaret, konungur Gyðinga“ (INRI). En það er líka aðeins hér sem Pílatusi er eignuð hugmyndin og framkvæmdin. Og það er líka bara hér sem hinir óvitlausu ráðamenn heimamanna sjá að skensið beinist gegn þeim en ekki Kristi: Þá sögðu æðstu prestar Gyðinga við Pílatus: „Skrifaðu ekki Konungur Gyðinga, heldur að hann hafi sagt: Ég er konungur Gyðinga.“ Pílatus svaraði: „Það sem ég hef skrifað það hef ég skrifað.“ (19. 21–22) Face. Þið ratið út. Látum að öðru leyti nægja um endalokin að segja frá því að það er hér sem Kristur ber kross sinn sjálfur, eins og við sjáum það öll fyrir okkur. Áfram mun mér þykja Símon frá Kyrene einstaklega áhugaverður maður, og sú saga sem því nemur sennilegri að hún er minna áhrifarík. Með Jóhannesarguðspjalli ljúkum við þessum þungavigtarhluta Biblíulestrarverkefnisins. Enginn hluti bókarinnar er – eðlilega – jafn kunnuglegur leikmönnum og þessi fjórþætta frásögn af lífi Jesú. Þetta er kjarninn. Hann hefur vitaskuld verið matreiddur ofan í mann á ýmsan hátt, og fróðlegt bæði að sjá hvað kemur hvaðan, og hverju er síður haldið á lofti. Auðvitað festir lesandi eins og ég svolítið augun á því sem stangast á við barnalærdóminn, eða fékk í það minnsta ekki inni í honum. Má þar nefna ástar-haturþríhyrninginn milli Krists, gyðinglegrar hefðar og Lögmálsins. Sem og hve margar minna þekktu dæmisögurnar eru torræðar og/eða grimmúðlegar. Og alltaf er það pínu „sjokk“ þegar söguhetjan sýnir á sér „ósympatíska hlið“. Þegar hann reiðist, þegar hann örvæntir yfir trú- og skilningsleysi samferðamanna sinna. Þegar hann beitir sófistískum mælskubrögðum. Þegar hann svarar í sumartunglið. Hann er bæði mannlegri og fjarlægari í mínum huga eftir þessa yfirferð. Lokahluti bókarinnar fer síðan í að smíða trúarbrögð úr þessum efnivið mótsagnakenndra orða, myrkra fullyrðinga, ótrúlegra máttarverka og uppfylltra spádóma. Hlakka til.

2.13.2015

Lúkasarguðspjall

„Það er þessi með ömmugleraugun!“


Textinn
Samanburður
Kynning

Hún er sterk, tilfinningin að Lúkasarguðspjall sé Nýja testamentið, á sama hátt og fyrsta og önnur Mósebók séu það gamla. Það stafar auðvitað af því að hér er jólaguðspjallið. Snertipunktur guðleysingjans sem fer samt í kirkju á jólunum, og/eða hlustar á útvarpsmessuna meðan hann skrælir kartöflurnar fyrir sykurbrúninguna.

En hér er líka sagan um miskunnsama Samverjann, um Mörtu og Maríu, Sakkeus tollheimtumaður og fleira sem við þekkjum öll vel þótt við dottuðum í fermingarfræðslunni og höfum vanrækt trúna síðan. Sumt annað ómissandi efni er reyndar ekki hér. Fjallræðan mun rýrari en hjá Mattheusi til dæmis. Sem og faðirvorið.

Og þó fæðingarsagan sé hvergi jafn-ítarleg og hér þá er enginn flótti til Egyptalands eða fjöldamorð á kornabörnum. Sem verður  að teljast lýti á hverri bók.

Heilt yfir er samt ljóst að jafnvel eftir krókaleiðum þýðingar og þýðingarhefðar þá er meira í þennan texta spunnið en M&M. Inngangurinn er t.d fallegur.

Við skulum staldra aðeins við Jólaguðspjallið. Í því eru línur sem vel má líta á sem kveikju þess að ég réðst í þetta verkefni.

Þorláksmessa 1997 og Eyvindur P. Eiríksson flytur ávarp á Ingólfstorgi eftir friðargöngu. Hann leggur út af lofsöng herskaranna á Betlehemsvöllum:

Dýrð sé Guði í upphæðum, og friður á jörðu með mönnum, sem hann hefur velþóknun á. (2.14)

og varpar fram þeirri spurningu hvers konar Guð fari í manngreinarálit þegar hann boðar frið, og beini þeirri ósk eingöngu til þeirra sem „hann hefur velþóknun á“. Og hvaða fólk er það þá? Þetta veldur smá fjaðrafoki og hinn frómi kórstjóri Þorgerður Ingólfsdóttir leiðir aldrei þessu vant ekki hópflutning á Heims um ból, í mótmælaskyni við guðlast Eyvindar.

Þetta sat í mér. Hafði aldrei hugleitt hvað þessi orð merktu. Þau höfðu álíka status í mínu lífi og Waldorfsalat. En mér fannst vangavelta Eyvindar áhugaverð. Og réttmæt, við fyrstu sýn.

Það var eitthvað seinna sem ég komst að því að bæði er orðalagið hæpin útlegging latínunnar og væri gjarnan þýtt á annan hátt. Eitthvað blandaðist inn í þetta munurinn á lúterskri og kaþólskri guðfræði, án þess ég vissi hvernig.

Þremur árum síðar var ég enn nógu upptekinn af þessu til að varpa fram spurningu á vísindavefnum. Svörin sem ég fékk voru fróðleg, en kannski ekki alveg svör við því sem mig fýsti að vita. Spurningin ekki nógu skýrt orðuð, held ég núna.

Í nýju þýðingunni er þetta svona:

„Dýrð sé Guði í
upphæðum
og friður á jörðu og
velþóknun Guðs
yfir mönnunum“

Sem er allt önnur – nánast andstæð – merking. Eitthvað sem hefði allsekki sjokkerað Eyvind. Annars vegar verður friður með þeim sem Guð hefur velþóknun á (og þá væntanlega ekki öðrum), hins vegar verður friður á jörðu og Guð hefur velþóknun á mannkyninu (öllu).

Svona hefur Oddur G. þetta:

„Dýrð sé Guði í uppæðum og friður á jörðu og mönnum góðvilji“

sem er ca eins og nýjasta þýðing. Þýðingarnefnd Jakobs Englandskonungs skilaði þessu keimlíkt:

„Glory to God in the highest, and on earth peace, good will toward men.“

Allsstaðar er það velþóknun/velvilji guðs gagnvart (öllum) mönnum sem boðaður er. Ekki exklúsívt neitt. Hvaðan sú dularfulla hugmynd er ættuð er jafn skrítið og áður, en skiptir kannski ekki máli úr því þetta er horfið úr íslensku Biblíunni.

Nema samt: Úr því við eigum að virða Orðið, taka fyllsta mark á því og láta það hafa afgerandi áhrif á hvernig við hugsum og hegðum okkur – má þá bara snúa svona upp á það – umræðulaust?

Þetta snýst nefnilega ekki um hvað sjokkerar Eyvind, heldur meira hversvegna umsnúningur lykiltexta úr lykilbók - gildabókinni, siðferðisgrunninum - sjokkerar ekki Þorgerði.

Þannig er nú það.

En úr því við erum að tala um þýðingarmun þá skulum við öll staldra við og njóta þessarar dásamlegu orða úr fjósinu:

„ ...ásamt Maríu, sinni festarkvon óléttri.“

Svipmikið hjá hr. Gottskálkssyni, ekki satt? Annars er ég ekki að standa neitt sérlega staðfastlega við fyrirheit um að lesa OG-þýðinguna meðfram. Til þess er hún ekki nógu spennandi, og svo er andskotans (afsakið) nóg að lesa (næstum) sömu söguna fjórum sinnum, þó maður bæti ekki ólíkum útleggingum við, Og hananú!

En áfram með dr. Lúkas

Hann fylgir formi Guðspjallanna: Boðun – fæðing – freistingar – kraftaverk – lærisveinar – meiri kraftaverk – vaxandi paník í faríseastétt – dæmisögur – Jerúsalem – handtaka – dauði.

Hvað kraftaverkin varðar er hér eins og áður aðallega verið að hrekja burt illa anda og reisa fólk frá dauðum eða þvísemnæst. Það hvað þau taka mikið pláss, og hvaða hlutverki þau gegna í gangi sögunnar er eitt af því sem ég hef lært nýtt af því að lesa NT.

Í siðferðisefnum er Lúkasarkristur á svipuðu róli og hjá M&M. Örlítið mildari samt. Hann fullyrðir reyndar að Lögmálið standi, en býður samt upp á þetta snaggaralega svar þegar kreddumenn hneykslast á honum og lærisveinunum fyrir athafnasemi á hvíldardeginum:

Ef einhver ykkar á asna eða naut, sem fellur í brunn, mun hann ekki óðara draga það upp þótt hvíldardagur sé? (14. 5)

Nauðsyn brýtur lög. Að þessu leyti er kenning Krists sveigjanleg, en óneitanlega er víða að finna meiri stífni. Eins og í fyrri spjöllum er sérstaklega útdeilt hórsekt þeim sem taka saman við fráskildar konur.

Dæmisögur og spakmæli Jesús eiga það til að vera torræð og myrk – og það meira að segja haft á orði í sögunum. Ætli sagan um rangláta ráðsmanninn (16. 1–9) sé ekki sú undarlegasta hingað til.

En þetta er fallegt:

Þegar þú heldur miðdegisverð eða kvöldverð bjóð þá hvorki vinum þínum né bræðrum, ættingjum né ríkum nágrönnum því að þeir bjóða þér aftur og þú færð það endurgoldið. Þegar þú gerir veislu þá bjóð þú fátækum og örkumla, höltum og blindum og munt þú sæll verða því að þeir geta ekki endurgoldið þér en þú færð það endurgoldið í upprisu réttlátra. (14. 12-14)

Ekki beint Hávamálamórall hér. Gott ef hér er ekki komið „kristið gildi“. Um hitt má svo deila hversu vel það hefur inngróið í vort vestræna siðvit.

Það er eiginlega mergjað að kapítalisminn skuli vera afsprengi hins kristna samfélags, svo mjög sem hamast er gegn auðsöfnun og veraldarhyggju í grunntextum þess. Ekki furða þó frjálshyggjuliðið reyni að sölsa til sín merkingu sögunnar frægu um miskunnsama Samverjann, sem bara er sögð hér, svona til að hafa eitthvað haldreipi. Með hörmulegum árangri.

Öllu auðveldara er að sjá áhrif guðspjallanna í skorti á fyrirhyggju varðandi framtíðina, sem hefur knúið okkur að brún heimsslitalegra umhverfishamfara, svo mjög sem hamrað er á að heimsendir sé í nánd, Menn eiga að treysta á Guð einan eins og fuglar himinsins og láta sér fátt um ættingja sína og vini. Hvað þá afkomendur.

Hjá Lúkasi líka áhersla á að aldrei sé of seint (eða seint of seint) að snúa sér til Guðs með iðrun sína. Sögurnar um týnda sauðinn og glataða soninn. Mögulega tengist það því að Lúkasarspjall ku vera ætlað heiðingjum fremur en Gyðingum. Hópi sem ekki gat stært sig af langtímatryggð við Lögmálið.

Og hér er líka dvalið við miskunnsemi Guðs gagnvart þeim sem iðrast (og eru ekki ríkir). Þetta er t.d. skemmtileg dæmisaga um mátt bænanna:

Þá sagði Jesús þeim dæmisögu um það, hvernig þeir skyldu stöðugt biðja og eigi þreytast: „Í borg einni var dómari, sem hvorki óttaðist Guð né skeytti um nokkurn mann. Í sömu borg var ekkja, sem kom einlægt til hans og sagði: ,Lát þú mig ná rétti á mótstöðumanni mínum.' Það vildi hann ekki lengi vel. En að lokum sagði hann við sjálfan sig: ,Ekki óttast ég Guð að sönnu né skeyti um nokkurn mann. En þessi ekkja lætur mig aldrei í friði. Því vil ég rétta hlut hennar, áður en hún gjörir út af við mig með nauði sínu.'“ Og Drottinn mælti: „Heyrið hvað rangláti dómarinn segir. Mun Guð þá ekki rétta hlut sinna útvöldu, sem hrópa til hans dag og nótt? Mun hann draga að hjálpa þeim? Ég segi yður: Hann mun skjótt rétta hlut þeirra. En mun Mannssonurinn finna trúna á jörðu, þegar hann kemur?“ (18. 1–8)

Manni finnst ansi kræft af Kristi að setja ranglátan dómara í hlutverk Guðs. En hvað, boðskapurinn kemst til skila. Þreytið Guð með nauði ykkar og Gullna hliðinu mun upp lokið verða. Og góð saga.

Annars er það að greiða úr mótsagnarlegum fullyrðingum guðspjallanna um stöðu Lögmálsins í heiminum, og þar með tengsl testamentanna, samband Gyðingdóms og Kristni, verkefni sem kallar á heila háskóladeild, frekar ein eitt fátæklegt leikmannsblogg.

Líkt og hjá Markúsi (en ekki Mattheusi) má segja að endalokasagan hefjist þegar Kristur veltir við borðum víxlaranna:

Þá gekk hann inn í helgidóminn og tók að reka út þá er voru að selja og mælti við þá: „Ritað er:
Hús mitt á að vera bænahús,
en þér hafið gjört það að ræningjabæli.“
Daglega var hann að kenna í helgidóminum, en æðstu prestarnir og fræðimennirnir svo og fyrirmenn þjóðarinnar leituðust við að ráða hann af dögum, en fundu eigi, hvað gjöra skyldi, því að allur lýðurinn vildi ákaft hlýða á hann. (19. 45–48)

Hér staldrar maður við tvennt. Annarsvegar „leituðust við að ráða hann af dögum“. Það er nú ekki eins og elítan hyggist á þeim tímapunkti fara „dómstólaleiðina“. Jakobsbiblían talar reyndar um „sought to destroy him“, sem er ekki eins afgerandi (gæti þýtt eitthvað PR-stunt), en Modern English útgáfan er jafnvel enn afdráttarlausari og segir hreinlega „tried to kill him“.

Og svo „allur lýðurinn vildi ákaft hlýða á hann“. Sem hljómar eins og Jesús sé a.m.k. á pari við Bítlana í vinsældum á sínum heimavelli, og gerir enn torskildara í hverju svik Júdasar felast. Að benda löggunni á með kossi hver af tólfmenningunum sé hinn „seki“ – frægasti maður Júdeu um þær mundir?

Um aðdraganda krossfestingarinnar fer hefðbundnum sögum. Einstaka atriði eru ólík milli Guðspjalla. Júdas hengir sig einungis hjá Mattheusi en Lúkas segir einn frá samskiptum Krists við ræningjanna (sem hér heita reyndar „illvirkjar“), samferðamenn sína yfirum.

Og ólíkt M&M er hér ekkert um þá skýru upplognu dauðasök Jesú að hafa montað sig af að geta rifið og endurbyggt musterið á nokkrum dögum. Sá sem bar þetta vitni er að mínu mati ein forvitnilegasta persónan sem er EKKI í Biblíunni.

Á hinn bóginn er ein forvitnilegasta aukapersónan í samstofna guðspjöllunum þremur Símon frá Kýrene. Hann er sagður „nýkominn utan úr sveit“ (sem er skemmtilegt orðalag) og er settur í að bera krossinn fyrir Krist, en kemur að öðru leyti ekki við sögu. Það er aðeins hjá Jóhannesi sem Jesús er látinn gera það sjálfur.

Þessi stutta lýsing á meðferð Gyðinga á fanga sínum er hjá þeim Markúsi, Mattheusi og Lúkasi öllum, en skírust og mest hrollvekjandi hér:

En þeir menn sem gættu Jesú hæddu hann og börðu, huldu andlit hans og sögðu:  „þú ert spámaður, segðu hver sló þig“ Og marga aðra svívirðu sögðu þeir við hann. (22. 63)

Maður hugsar um Abu Grahib. Og hvaða trúar þeir voru sem þar fóru sínu fram. Og hve þunga áherslu það samfélag leggur á kristin gildi. Og hvort þeir hafi sofið vel í sunnudagaskólanum á sínum tíma.

Blálokin eru forvitnilega ólík milli M, M og L. Eftir að Kristur er upp risinn og kominn í samband við lærisveina sína aftur. Hér er Markús:

Seinna birtist hann þeim ellefu, þegar þeir sátu til borðs, og ávítaði þá fyrir vantrú þeirra og þverúð hjartans, að þeir hefðu ekki trúað þeim er sáu hann upp risinn. Jesús sagði við þá: „Farið út um allan heim, og prédikið fagnaðarerindið öllu mannkyni. Sá sem trúir og skírist, mun hólpinn verða, en sá sem trúir ekki, mun dæmdur verða. En þessi tákn munu fylgja þeim er trúa: Í mínu nafni munu þeir reka út illa anda, tala nýjum tungum, taka upp höggorma og þó að þeir drekki eitthvað banvænt mun þeim ekki verða meint af. Yfir sjúka munu þeir leggja hendur og þeir verða heilir.“
Þegar nú Drottinn Jesús hafði talað við þá, var hann upp numinn til himins og settist til hægri handar Guði. Þeir fóru og prédikuðu hvarvetna, en Drottinn var í verki með þeim og staðfesti boðun þeirra með táknum, sem henni fylgdu. (Mark 16. 14–20)

Mattheus:

En lærisveinarnir ellefu fóru til Galíleu, til fjallsins, sem Jesús hafði stefnt þeim til. Þar sáu þeir hann og veittu honum lotningu. En sumir voru í vafa. Og Jesús gekk til þeirra, talaði við þá og sagði: „Allt vald er mér gefið á himni og jörðu. Farið því og gjörið allar þjóðir að lærisveinum, skírið þá í nafni föður, sonar og heilags anda, og kennið þeim að halda allt það, sem ég hef boðið yður. Sjá, ég er með yður alla daga allt til enda veraldar.“ (Mat 28. 16–20)

Og loks okkar maður, líflæknir postulans, dr. Lúkas

Þegar hann hafði þetta mælt, sýndi hann þeim hendur sínar og fætur. Enn gátu þeir ekki trúað fyrir fögnuði og undrun. Þá sagði hann við þá: „Hafið þið hér nokkuð til matar?“ þau fengu honum stykki af steiktum fiski og hann tók það og neytti þess frammi fyrir þeim.
Og hann sagði við þau: „Meðan ég var enn meðal ykkar sagði ég ykkur: allt sem ritað er um mig í lögmáli Móse, spámönnunum og sálmunum á að rætast.“ Síðan lauk hann upp huga þeirra, að þau skildu ritningarnar. Og hann sagði við þau: „Svo er skrifað, að Kristur eigi að líða og rísa upp frá dauðum á þriðja degi, og að prédika skuli í nafni hans öllum þjóðum iðrun til fyrirgefningar synda og byrja í Jerúsalem. Þér eruð vottar þessa. Ég sendi ykkur andann sem faðir minn hét ykkur en verið  kyrrir í borginni, uns þér íklæðist krafti frá hæðum.“ 
Síðan fór hann með þá út í nánd við Betaníu, hóf upp hendur sínar og blessaði þau. En það varð, meðan hann var að blessa þá, að hann skildist frá þeim og var upp numinn til himins. En þau féllu fram og tilbáðu hann og sneru aftur til Jerúsalem með miklum fögnuði. Og þau voru stöðugt í helgidóminum og lofuðu Guð. (Lúk 24. 40–53)

Það er gaman að þessu með steikta fiskinn hjá Lúkasi. Heyriði ekki fyrir ykkur Jesú segja, eftir fangavist, krossdauða, dvöl í hellinum og þrjá daga í helju: „Hafið þið hér nokkuð til matar?“

Svo er nú skemmtilegt að hann hókusi í þá ritningarskilning. Markús áréttar einn að þeir sem ekki trúi verði fordæmdir. Já og gefur ofsatrúarfólki undir fótinn með að tala tungum og handleika snáka. Vel gert Mark!

Áhugavert líka að eina guðspjallið sem talar um að þau (þeir í eldri versjón) eigi að halda kyrru fyrir í Jerúsalem þar til þau  „íklæðist krafti frá hæðum“.

Eru þau þar enn? Eins og skáldið sagði.

Hjá öllum guðspjallamönnunum er ljóst að erindi Guðs í gegnum umboð Krists og nú lærisveinana er að boða trúna öllum – ekki aðeins Gyðingum. Samt skilst mér að það hafi verið rifist heilmikið um þetta atriði lengi á eftir, og sé jafnvel enn.

Í ljósi þess hve margt er myrkt, mótsagnakennt og óskýrt í kenningunni þá finnst mér nú óþarfi að gera sér að deiluefni skíran samhljóða vitnisburð eins og þennan.

1.14.2015

Markúsarguðspjall

Særingamaðurinn

Textinn
Samanburður
Kynning

Í tónlistarbransanum er stundum talað um „erfiðu aðra plötuna“. Það er snúið að fylgja eftir vel heppnaðri frumraun. Ekki það að Markúsarguðspjall sé eftir sama mann og Mattheusar. Eða hafi verið skrifað á eftir því. Eiginlega bara alls ekki. En kanónan raðar þessu svona. Og Markús er klárlega minnst-ívitnaði guðspjallamaðurinn. Í þessu spjalli er fátt sem er ekki líka annarsstaðar. Fjarvera ýmiss efnis beinir svo athygli að öðrum hlutum.

Hér er nú hafist handa á jafnvel enn brattari hátt en hjá Matthíasi. Ekkert um fæðingu, Maríu eða heilagan anda. Ekkert um flótta til Egyptalands, vitringa eða fjárhirða.


Þess í stað byrjum við á hrópandanum í eyðimörkinni. Og svo:


Svo bar við á þeim dögum, að Jesús kom frá Nasaret í Galíleu. Jóhannes skírði hann í Jórdan. (1, 10)


Hann viðar að sér lærisveinum með hefðbundnum hætti. Stillir sig reyndar um að segja brandarann um Símon Pétur, en gefur honum viðurnefnið serimóníulaust síðar.


Byrjar svo að predika – og lækna. Og það eru lækningarnar sem ljá orðum hans vigt – það er jafnvel enn skýrara hér en hjá Matthíasi. Sérgreinin er líka skýrari: að flæma út illa anda.


Þeir komu til Kapernaum. Og hvíldardaginn gekk Jesús í samkunduna og kenndi. Menn urðu mjög snortnir af orðum hans því að hann kenndi þeim eins og sá er vald hefur, og ekki eins og fræðimennirnir.
Þar var í samkundu þeirra maður haldinn óhreinum anda. Hann æpti: „Hvað vilt þú oss, Jesús frá Nasaret? Ert þú kominn að tortíma oss? Ég veit, hver þú ert, hinn heilagi Guðs.“
Jesús hastaði þá á hann og mælti: „Þegi þú, og far út af honum.“
Þá teygði óhreini andinn manninn, rak upp hljóð mikið og fór út af honum. Sló felmtri á alla, og hver spurði annan: „Hvað er þetta? Hann kennir á nýjan hátt. Það er eins og hann búi yfir guðlegum mætti! Hann skipar jafnvel óhreinum öndum og þeir hlýða honum.“ Og orðstír hans barst þegar um alla Galíleu. (1. 21–28)


Hann býr yfir mætti. Þessi máttur gerir orð hans trúanleg, þó hann „kenni á nýjan hátt“.


Já og svo er þetta svolítið snjöll frásögn í því hvernig hinn illi andi talar gegnum þann andsetna. Smá Exorcist-blær á þessu.


Þessar illraandasögur eru fjölmargar hér. Til dæmis þessi með andabandið Hersingu sem hann flæmir úr hýslinum í nærstadda svínahjörð. (5. 9–13).


Vafalaust hafa þetta verið villisvín - varla hafa menn haldið svo óhrein dýr óáreittir undir vökulu auga faríseanna.


Já og sjálf María Magdalena var heimili nokkurra slíkra.


Almennt séð: Krafturinn sem kraftaverk eru kennd við sanna að það sem hann kennir er sannleikurinn.


Kraftaverkasögur eru auðvitað ekki það sem við utantrúarmenn getum sótt til gagns í þessa bók. Fagurlega orðuð tilmæli um að elska náungann og annað þvíumlíkt er öllu hnýsilegra. Og þau eru hér nokkur. Þar á meðal kærleiksboðorðið. En óneitanlega staldrar maður við þegar Jesús beitir kraftaverkamættinum til ills - eða allavega í hefndarskyni:

Á leiðinni frá Betaníu morguninn eftir kenndi Jesús hungurs. Þá sá hann álengd laufgað fíkjutré og fór að gá hvort hann fyndi nokkuð á því. En þegar hann kom að því fann hann ekkert nema blöð enda var ekki fíknatíð. Jesús sagði þá við tréð: “Enginn neyti framar ávaxtar af þér að eilífu!” (11. 12-14)

Mannlegur eftir allt saman, gæti einhver sagt. Like father, like son væri líka hægt að segja Dæmisögur eru hér nokkrar, og margar þeirra voru einnig hjá Mattheusi. Hér er jafnvel skýrara en áður að hann talar í dæmisögum við söfnuðinn en berum orðum við lærisveinana. Í mörgum slíkum dæmisögum flutti Jesús þeim orðið svo sem þeir gátu numið og án dæmisagna talaði hann ekki til þeirr en fyrir lærisveinum sínum skýrði hann allt þegar þeir voru einir. (4. 33–34) Það verður að segjast að myrkar eru sögurnar, og það sem umfram þær er í máli Krists við lærisveinanna snýst nánast eingöngu um hvað muni gerast þegar hann verði svikinn og drepinn. Já og svo eru reyndar nokkrar dæmisögur fyrir þá líka. Erfitt að skilja af hverju er svona brýnt að vera óljós þegar talað er við pupulinn samt. Smám saman koma í fókus hinir fjórir tjáningarhættir Krists:
  • Fyrir alla: Kraftaverk
  • Við almenning: Dæmisögur
  • Við lærisveina: Spásagnir um nánustu framtíð og efstu daga
  • Við fræðimenn og Farísea: Spælingar
Hinar síðastnefndu eru stundum býsna góðar. Þessi er t.d. bæði hjá Mat og Mark: Þeir koma aftur til jerúsalem og þegar hann var á gangi í helgidóminum koma til hans æðstu prestarnir, fræðimennirnir og öldungarnir og segja við hann: „Með hvaða valdi gerir þu´þetta? Hver gaf þér það vald að þú gerir þetta?“ Jesús sagði við þá: „Ég vil leggja eina spurningu fyrir ykkur. Svarið henni og ég mun segja ykkur með hvaða valdi ég geri þetta. Hver fól Jóhannesi að skíra, var það Guð eða voru það menn? Svarið mér!“ Þeir ráðguðust hver við annan um þetta og sögðu: „Ef við svörum: það var Guð, spyr hann: Hví trúðuð þið honum þá ekki? Eða ættum við að svara: „Það voru menn?“ – Það þorðu þeir ekki fyrir fólkinu því allir töldu að Jóhannes hefði verið sannur spámaður. Þeir svöruðu Jesú: „Við vitum það ekki.“ Jesús sagði við þá: „Ég segi ykkur þá ekki heldur hver fól mér að gera þetta“. (11. 27–33) Frekar svalt. Enn er alveg ljóst að heimsendir er í nánd. Hann mun koma „í þessari kynslóð“. Þó hér sé ekkert um liljur vallarins eða hvatning um að taka sér fugla himinsins til fyrirmyndar um fyrirhyggju fyrir sig og sína eru fjölskyldugildi ekki hátt skrifuð hér. Kristur er reyndar alveg afdráttarlaust á móti hjónaskilnuðum, en annars er hann á því að vinnan komi fyrst: Nú koma móðir Jesú og bræður, standa úti og gera honum orð að koa. Mikill fjöldi sat í kringum hann og var honum sagt „Móðir þín, bræður og systur eru hér úti og spyrja eftir þér“ Jesús svarar þeim „ver er móðir mín og bræður?” Og hann leit á þau er kringum hann sáut og segir: „Hér er móðir mín og bræður mínir. Hver sem gerir vilja Guðs, sá er bróðir minn og móðir.“ (3. 31-35) Bræðralag allra manna trompar fjölskyldubönd. Talandi um fjölskyldur – Eitt af því sem Markús fer eilítið ítarlegar í en Mattheus er aðdragandi dauða Jóhannesar skírara. Báðir rekja Jesúsarótta Heródesar til trúar á að hann sé Jóhannes endurborinn. Hvorugur nefnir reyndar Salóme á nafn. Og báðir leggja áherslu á hve tregur Heródes er til að lífláta Jóhannes. Lokakaflinn er keimlíkur frásögn Mattheusar, að frátöldu því að engum sögum fer af sjálfsmorði Júdasar eða handþvotti Pílatusar. Aftur hangir dauðadómurinn á upploginni ásökun um að Jesús hafi sagst geta rifið og endurbyggt musterið á þremur dögum. Enn er jafn óskiljanlegt í hverju svik Júdasar ættu að vera fólgin. Reyndar er jafnvel enn meira áberandi hér hvað Kristur þráir að fara höldu höfði, en jafn ljóst að það hefur honum gersamlega mistekist. Mig langar að vita meira um þetta ljúgvitni. Er engin arfsögn um hver þetta gæti hafa verið? Svona eins og að einhverntíman fengu vitringarnir frá Austurlöndum ekki bara tölu heldur nöfn. Að ógleymdri henni Salóme. Hún er enn bara dóttir Heróídasar, bróðurdóttir Heródesar. Og María Magdalena andsetin - engum sögum hefur enn farið af atvinnu hennar. Markúsarguðspjall er meiri axjónsaga en Mattheus. Kaldari, en líka mildari. Læknirinn Jesús er í forgrunni og honum er minna í mun að koma fram sem arftaki spámannanna eða ítreka Lögmálið. Sem bókmenntir er hún lakari, ekki eins snjall sögumaður hér á ferð. Framhald í næsta spjalli.

1.04.2015

Mattheusarguðspjall

Heimsendir er í nánd!


Nú kom hún aftur – tilfinningin sem ég fékk við að lesa Fyrstu Mósebók. Þessi kunnugleiki en jafnframt framandleiki. Því hér er margt og mikið sem „allir“ þekkja þó þeir hafi aldrei lesið bókina og hvorki séð myndina né söngleikinn.
Hér er fjallræðan (meira af henni síðar) og flóttinn til Egyptalands. Hér mettar Jesús* mannfjöldann með sjö brauðum og fáeinum fiskum. Hér er borðum víxlaranna velt við. Hér er börnunum leyft að koma til. Og þetta:
Elska skalt þú Drottin, Guð þinn, af öllu hjarta þínu, allri sálu þinni og öllum huga þínum. Þetta er hið æðsta og fremsta boðorð. Annað er hliðstætt þessu: Þú skalt elska náunga þinn eins og sjálfan þig. Á þessum tveimur boðorðum hvílir allt lögmálið og spámennirnir. (22. 37–39)
Nú er ég tiltölulega nýlega búinn að lesa lögmálið og spámennina og það þarf talsvert handafl – mér liggur við að segja kraftaverk – til að leiða það sem þar stendur af þessum skýru og fögru orðum. Enda láta skynsamir fylgismenn Krists þetta duga. Meira að segja óskynsamir fylgismenn hans vitna ekki í rit Gamla Testamentisins nema þá búta þess sem henta málflutningi þeirra.
Reyndar skilst mér á því sem ég hef lesið í kringum Matthías að sá guðspjallamaður sé einna uppteknastur þeirra fjórmenninga við að tengja Jesúm við Gyðingdóm, þjóðina útvöldu og hin fornu helgirit hennar. 
Samanburður verður að bíða þar til ég hef lesið hina af „the fab four“. Hitt er annað mál að þetta er nokkuð augljóst. Hér predikar gyðinglegur spámaður – rabbíi (hann er kallaður það nokkrum sinnum í bókinni). Hér ræðst mælskur kraftaverkalæknir gegn bæði hinni andlegu (farísear) og veraldlegu (saddúkear) elítu. Og það er alveg skýrt og ljóst að dauði hans er á þeirra vegum.
Tölum aðeins um form og stíl. Þetta er frábærlega skrifuð bók. Formið glæsilegt. Eftir ættartöluinngang sem vafalaust hefur fælt fleiri en unglinginn mig frá því að lesa meira hefst æsileg atburðarás. Getnaður, fæðing, flótti og eftirför. Höfundur Mattheusarguðspjalls er verulega flinkur sögumaður og fer aftur á það flug undir lokin þegar sjónarhornið verður aftur „frásagnarkennt“.
Meginhlutinn – ketið í hamborgaranum – er svo skýrslukennd mynd af því sem söguhetjan – Jesús – segir og gerir. Líka vel skrifuð.
Ef við byrjum á byrjuninni þá vekur strax athygli þegar Mat víkur frá Lúk. Hér er ekkert manntal, engin boð frá Ágústusi, ekkert fjárhús, engir fjárhirðar og reyndar ekkert sem bendir til að hinir ungu foreldrar (móðir og staðgöngufaðir) búi ekki einfaldlega í Betlehem. Eftir flóttann til Egyptalands sest fjölskyldan síðan að í Nasaret, að því er virðist af dramatískri nauðsyn:
Þar setist hann að í borg sem heitir Nasaret en það átti að rætast sem spámennirnir sögðu fyrir um: „Nasarei skal hann kallast“. (2, 23)
Verst að ekkert í spádómunum vísar í Nasaret, hvað þá að þetta tiltekna kvót sé þar að finna, þó Mattheus og þýðendur hans setji það innan gæsalappa.
Eftir að hafa skírst hjá Jóhannesi og ekki látið freistast í eyðimörkinni tekur Jesús að predika. Skilaboðin virðast bæði mjög einföld og fylgja spámannahefðinni:
Upp frá þessu tekur Jesús að prédika og segja: „Takið sinnaskiptum, himnaríki er í nánd“. (4, 17)

Svo mörg voru þau orð. Kristur virkar stundum eins og einn spámannanna, eða allavega eins og aðeins minna klikkaður sporgöngumaður þeirra. Maður hugsar um frumblúsmennina dularfullu og það sem Led Zeppelin lærði af / fékk lánað hjá þeim, og gerði að aðgengilegri almenningseign.
Jesús byrjar líka að lækna sjúka. Stundum eru þeir sem læknaðir eru beðnir að halda því fyrir sig. Það fer nú svona og svona. Og ef maður er illa innrættur finnst manni nokkuð ljóst að það eru kraftaverkin sem hafa aðdráttaraflið og mannfjöldinn láti sig meira hafa ræðuhöldin til að eiga þess kost að fá bót meina sinna:
„Jesús fór nú um alla Galíleu, kenndi í samkundum þeirra, predikaði fagnaðarerindið um ríkið og læknaði hver kyns sjúkdóm og veikindi meðal fólksins. Orðstír hans barst um allt Sýrland og menn færðu til hans alla sem þjáðust af ýmsum sjúkdómum og kvölum … og hann læknaði þá.“ (4, 23–24)
Ekki það að það sé neitt upp á retóríkina að kvarta. En óneitanlega er kenningin hörð. Meginþemað er þetta ofangreinda um að himnaríki sé í nánd og öllu skipti að vera í góðu sambandi við Guð. Til þess má kosta öllu: fjölskyldu (vertu ekki að hafa fyrir því að grafa foreldrana, 8, 21-22, 10, 37-39), veraldlegri fyrirhyggju (hyggið að liljum vallarins, 6, 25-29), útlimum jafnvel (18, 8-9)
En nú erum við komin framúr okkur. Framhjá sjálfri Fjallræðunni. Sem er mun fyrr á dagskrá en ég hafði ímyndað mér – og það er ekki þar sem Jesús mettar mannfjöldann eins og ég hélt. Hann gerir það reyndar tvisvar í Mattheusarguðspjalli, fyrst með fimm brauðum og tveimur fiskum (14, 15-21) og síðan sjö fiskum og fáeinum smáfiskum (15 35-38). Bitamunur en ekki fjár.
Annað sem ég hafði ekki áttað mig á um Fjallræðuna: hún er prívatræða yfir lærisveinunum einum:
Þegar Jesús sá mannfjöldann gekk hann upp á fjallið. Þar settist hann og lærisveinar hans komu til hans. Þá hóf hann að kenna þeim og sagði: (5, 1–2)
Svolítið eins og hann sé að flýja múginn. Það er ekki fyrr en hann stígur niður af fjallinu aftur sem aftur sem talað er um að mannfjöldi fylgi honum (8, 1).
En hvað er hann þá að kenna lærisveinum sínum á fjallinu? 
Þarna eru auðvitað sæluboðin og faðirvorið og ýmislegt annað af kjarnaskilaboðum kristninnar og fegurstu textabrotum vestrænnar menningar. Þau eru reyndar víða í bókinni.
En Kristur fer líka yfir boðorðin tíu (sum þeirra) á ansi áhugaverðan hátt. Stundum þannig að hann vilji ganga lengra - stundum skemur. Förum aðeins yfir þetta:
Þú skalt ekki morð fremja

Gengur ekki nógu langt. Þeir sem reiðast eða hrakyrðir bróður sinn fer til helvítis. (5, 21-26)
Þú skalt ekki drýgja hór

Gengur ekki nógu langt. Þeir sem girnast konu, eða skilja við konu án þess að það sé vegna hórdómsbrots hennar, eru hórsekir. (5, 27-32)
Þú skalt ekki sverja rangan eið

Gengur alls ekki nógu langt. Þú skalt ekki vinna eið. Punktur. (5, 33-37)
Auga fyrir auga

Er afnumið. Bjóðið hina kinnina. (5, 38-39)
Elskið náungann en hatið óvinina

Er rangt. Elskið óvini yðar. „Þannig sýnið þér að þér eruð börn föður yðar á himnum er lætur sól sína renna upp yfir hinum vonda sem góða og rigna yfir réttláta sem rangláta“ (5, 43-45)
Fallega sagt. Mig minnir reyndar að faðir okkar á himnum falli sjálfur ítrekað á þessu prófi á árum áður.
Almennt ítrekar Jesús að lögmálið - þ.e. Mósebækur - séu enn í fullu gildi. Hann er ákaflega spámannlegur á köflum - þ.e. minnir á dómsdagsþusara Gamla testamentisins. Skýrari samt og öllu mildari. Oftast.
Í bókinni er líka slatti af dæmisögum. Þeim virðist ætlað að skýra á hulinn hátt eðli himnaríkis og skilyrði fyrir aðgangi að því. Hefjast á orðunum „Líkt er um himnaríki og…“
Það verður að viðurkennast að þessar sögur eru nú oftast ekki til mikils skilningsauka. Frekar að þær séu til að réttlæta og sannfæra. Tökum söguna um vinnumennina í víngarðinum í 20. kafla. Þar greiðir víngarðseigandinn öllum verkamönnunum jafnmikil laun, óháð framlagi, við talsverða óánægju þeirra sem mest hafa lagt til verksins. Þetta er ágæt saga, en það hefði alveg eins verið hægt að segja: „Sko, það þýðir ekkert að vera fúll yfir að hafa eytt ævinni í dygðugt en leiðinlegt líf - Guð er góður og miskunnsamur, og því vís með að náða allskyns nautnabelgi og skúrka á síðustu stundu. Hann ræður, ok?“
Svo eru aðrar hreinlega óhugnanlegar í Gamlatestamenntislegri grimmd sinni. Ekki síst brúðkaupsveislan blóðidrifna í 22. kafla.
Um lokakaflann - handtöku og krossfestingu Jesú - hef ég aðeins tvennt að segja að sinni:
1Ég skil ekki í hverju svik Júdasar felast. Að bera kennsl á Jesúm? Víðfrægan/illræmdan predikara og kraftaverkalækni með þúsundir fylgismanna sem nokkrum dögum/vikum áður stóð í þrasi við fulltrúa elítunnar og velti við borðum í musterinu? Vissu ekki allir hver þetta var? Á hinn bóginn bera tveir nafnlausir menn vitni gegn honum fyrir Kaífasi og segja hann hafa sagst geta rifið musterið og endurreist á þremur dögum (26, 61) Það dugði til sakfellingar. Þetta man ég ekki eftir að hafa séð eða heyrt áður. Það væri fróðlegt að vita deili á þessum drullusokkum.
2Eins og sagt er frá málum hér er yfirstétt Gyðinga einni um að kenna hvernig fór. Hún notar miskunarlaust og vélgengt framkvæmdavald Rómverja til að koma fyrir kattarnef manni sem henni stóð stuggur af. Múgurinn kallar blóð hans yfir sig. Ekkert sýnilegt svigúm til að túlka það neitt, svo ég fái séð.
Kröftug bók. Full af fögrum lífsreglum, ströngum kröfum, skrítnum sögum, kraftaverkum og heimsendaspám. Hlakka til að lesa þá næstu og hefja samanburð.
* Nafnið beygist svona.


1.01.2015

Inngangur að nýjatestamentislestri

Nú hefst lokahluti Biblíulesturs og ritgerðasmíða um hann. Nýja testamentið. Guðspjöllin, Postulasagan, margt bréfið og Opinberunarbókin. Til grundvallar verður nýjasta útgáfan/þýðingin en ég er að hugsa um að lesa líka part og part í þýðingu Odds Gottskálkssonar. Eins og áður mun ég svo snuðra í erlendum þýðingum ef ég hnýt um eitthvað sem mér finnst málum blandið.

Það verður að viðurkennast: Glímuskjálftinn þegar ég hefst handa við þennan endasprett er bæði meiri og annars eðlis en þegar bókin var opnuð á fyrstu Mósebók.

Því ef þér hefur tekist að afhelga þessa sögu með öllu þá ertu komin(n) lengra út á vantrúarísinn en ég treysti mér, eða kæri mig um. Er ég þó ekki í Þjóðkirkjunni, hvað þá öðrum söfnuðum, og lít ekki á mig sem kristinn.

En samt.

Nýja testamentið er í mínum huga „heilagt“ á einhvern hátt sem það gamla er ekki. Reyndar voru öflugar hreyfingar í frumkristni á því að varpa helgiritum Gyðinga alfarið fyrir róða og láta fagnaðarerindin og pistla Páls og félaga nægja. Þær töpuðu.

Allavega líður mér þannig að það skipti meira máli að nálgast þessi rit með meiri, tjah, kurteisi/nærfærni, en hinar minna þekktu og á köflum súrrealískt hrottalegu bækur GT. Kallið mig pempíu, hræsnara, rasista jafnvel. Svona líður mér. Finnst sjálfsagt að fara úr skónum áður en gengið er hér inn.

Hitt er annað mál: Ég mun alveg örugglega ekki stilla mig um að skrifa um skrítna staði, sjaldséða kafla, veika bletti, kristilega blygðunarbletti ef svo má segja. Skárra væri það nú. Ég mun líka dást að því sem fallegt er og vel sagt og gert. Og ekki síst reyna að svipast um eftir því sem víðsýnn trúleysingi, eins og ég vil meina að ég sé, getur sótt til bókarinnar góðu.

Og hver veit nema ég komi auga á hin kristnu gildi sem svo mjög er hampað sem einstökum verðmætum, og líka dregið í efa að séu nokkuð annað en sjálfsagðir hlutir, heilbrigð skynsemi og góss úr alþýðuspeki og allskyns trúarhugmyndum héðan og þaðan úr tíma og rúmi.

Já og svo ætla ég að reyna að vera skemmtilegur. Og þokkafullur í þessum sjálfskipaða línudansi.

Ég segi nú bara eins og annar opinhuga maður, Heimir Schnitzel: Má maður vera með glímuskjálfta?!

6.20.2014

Bæn Manasse


Sorry seems to be the ... word


Textinn (á ensku – apókrífu bækurnar eru ekki á netinu á íslensku)
Kynning

Síðasta bókin í Gamla testamentinu, séu apókrífubækurnar hafðar með, er þessi bæn. Varla bók, rúmlega  blaðsíða. Innihaldslega ekkert sem við höfum ekki séð oft áður.

Sem er viðeigandi. 

Það má alveg líta á Bæn Manasse sem samantekt efnisins, niðurstöðu þessarar löngu misþroskasögu þjóðar – og ekki síður guðs hennar.

Nafnið Manasse stendur líka á sinn hátt fyrir upphaf og endi sögunnar. Þetta nafn bar einn af sonum Jakobs og þar með einn af ættbálkafeðrunum tólf. Fékk úthlutað stórum skika í norðausturhluta fyrirheitna landsins. Seinna ríkti konungur með þessu nafni yfir suðurríkinu Júda. Bænin er hans, Manasse var einn af þeim sem sneri baki við Guði, rauf sáttmálann en iðraðist og sneri aftur. 

Bænin er um það: Guð er máttugur - ég brást honum - ég biðst fyrirgefningar.

Um þetta snýst Gamla testamentið.

Leyfum Manasse Júdakonungi að hafa lokaorðin í yfirferðinni um þetta stórkostlega ritsafn:

Drottinn, almáttugi guð feðra vorra,
Guð Abrahams, Ísaks og Jakobs
og réttlátra niðja þeirra.
Með boði orðs þíns hlekkjaðir þú hafið, 
lokaðir undirdjúpunum og innsiglaðir þau
með óttalegu og undursamlegu nafni þínu.
Allt óttast þig
og skelfur frammi fyrir almætti þínu.
Enginn afber hátign dýrðar þinnar
og enginn syndari stenst ógn reiði þinnar.
En náð þín er ómælanleg
og fyrirheit þín órekjandi.
Því að þú ert Drottinn, Hinn æðsti,
samúðarríkur, seinn tll reiði
og mildur á miskunn.
Þegar menn líða fyrir syndir sínar
endurmetur þú viðhorf þitt.
Þú, Drottinn, hefur af gnægð mildi þinnar og gæsku
heitið þeim sem brotið hafa gegn þér
að þeir megi iðrast og fyrirgefningu hljóta.
Þú hefur afráðið af mikilli miskunn
að syndarar megi iðrast og hljóta hjálpræði.
Vissulega krafðist þú, sem ert Guð réttlátra,
ekki iðrunar af hinum réttlátu,
af Abraham, Ísak og Jakobi
sem syndguðu aldrei gegn þér.
En af mér krefst þú afturhvarfs
því að syndari er ég.
Syndir mínar eru fleiri en sandkorn á sjávarströnd.
Brot mín gegn lögmálinu, Drottinn, verða ekki talin,
þau eru óteljandi.
Ég er ekki þess verður að hefja upp augu
og horfa til himins
sakir alls ranglætis míns.
Ég er þjakaður af þungum járnfjötrum
svo að ég má eigi höfuð hefja sakir synda minna.
Ekkert léttir þeim af mér
því ég egndi þig til reiði
er ég gerði það sem illt er í augum þínum.
Ég reisti viðurstyggileg skurðgoð
og fjölgaði þeim stórum.
Nú beygi ég kné hjartans
og bið þig að auðsýna mér miskunn þína.
Ég hef syndgað, Drottinn, syndgað
og viðurkenni það sem ég hef af mér brotið.
Ég ákalla og bið þig:
fyrirgef mér, Drottinn fyrirgef,
lát mig eigi glatast vegna afbrota minna.
Minnstu ekki synda minna
og ver mér eigi að eilífu reiður.
Dæm mig ekki niður í undirdjúp jarðar
því að þú, Guð, ert Guð þeirra sem iðrast.
Þá munt þú sýna á mér alla gæsku þína
er þú bjargar mér af mikilli miskunn
þótt ég sé óverðugur.
Ég mun sífellt lofa þig svo lengi sem ég lifi,
allir herskarar himna syngja þér lof,
þín er dýrðin að eilífu. Amen.

Önnur Makkabeabók

More is More


Textinn (á ensku – apókrífu ritin eru ekki á íslensku á netinu)
Kynning

Hún er kölluð „Önnur Makkabeabók,“ ekki „Seinni“, þó aðeins tvær séu hafðar með hér. Það stafar af því að M3 og M4 eru til en eru svo apókrífar að þeim er nánast allsstaðar útskúfað úr kanónunni. Hér er lesanda frjálst að mynda hugrenningatengsl við Police Academy. Eða Highlander jafnvel. Að sjálfsögðu á eigin ábyrgð.


Eða kannski frekar við Saw-seríuna, því hér eru pyntingar og hrottaskapur í talsvert meiri forgrunni en í öðrum bókum Biblíunnar. Það er enn meira áberandi fyrir þá sök að hér er sögð nokkurnvegin sama saga og í fyrri hluta M1, af ofsóknum gegn Gyðingum á vegum Antíokkusar IV og uppreisn Júdasar Makkabeusar.


Stíllinn og frásagnarhátturinn er jafnvel enn „nútímalegri“ en í M1. Þetta er lipur og auðlesinn texti, en stærsta breytingin er samt sú hvað höfundur veifar gildisdómavopninu oft og mikið. Talar um „mannhunda“, „hrakmenni“ og fleira skrautlegt þegar þarf að mála óvini sterkum litum.


Það er heldur ekkert dregið úr þegar kemur að lýsingum á framferði þeirra. Það fer frá því að vera all-sakleysislegt frá okkur séð, eins og þegar hellenskt þenkjandi æðstiprestur:


… reyndist óðfús að reisa íþróttamannvirki undir sjálfri háborginni og fylkti um sig göfugustu æskumönnum, en þeim leyfðist nú að bera hatta … (4. 12)


yfir í grimmilegar kúgunar- og niðurlægingaraðgerðir á vegum Antíokkusar:


Einna virtastur af fræðimönnunum var Eleasar. Hann var aldraður maður maður og sviphreinn. Hann var þvingaður til að opna munninn og svínakjöti troðið upp í hann. (6. 18)


Hámarki ná svo þessar lýsingar í löngum kafla þar sem sjö bræður eru pyntaðir til dauða fyrir framan móður sína til að reyna að fá þau til að neyta hins forboðna svínakjöts. Öll sýna þau mikla trúfesti. Hér mælir móðirin til sonanna:




Ég veit ekki hvernig þið urðuð til í lífi mínu. Ekki var það ég sem gaf ykkur líf og anda og ekki kom ég skipan á frumefnin sem þið eruð úr. Það er skapari heimsins sem mótar manninn þegar hann verður til og ákvarðar tilurð allra hluta. Þess vegna mun hann í miskunn sinni gefa ykkur anda og líf að nýju fyrir það að fórna ykkur fyrir lögmál sitt. (7. 22–23)

Lýsingarnar á dauða drengjanna eru ekki falleg lesning. En trúarbragðanördinn hnýtur um að hér er talað um framhaldslíf, sem almennt er ekki á dagskrá í Gamla testamenntinu. Það lætur einnig á sér kræla í orðum sögumanns um framferði Júdasar eftir eina orrustuna þegar hann lætur:


... alla sína menn skjóta saman. Urðu það tvö þúsund drökmur silfurs sem Júdas sendi til Jerúsalem til að kosta syndafórn. Þetta gerði hann vel og skynsamlega því að hann hafði upprisuna í huga. Ef hann hefði eigi vænst þess að hinir föllnu risu upp hefði það verið óþarfi og heimska að biðja fyrir látnum. Auk þess leit hann svo á að dýrleg umbun biði þeirra sem sofna í trú. Heilög og fróm hugsun er það. Þess vegna lét hann færa sáttarfórn fyrir hina látnu til að þeir leystust frá syndum sínum. (12. 43–45)

Það er eftir þessa skelfingu með drengina sem uppreisn Júdasar Makkabeusar hefst fyrir alvöru. Atburðarásin er ekki mikið frábrugðin þeirri í M1, en lýsingarnar eru litríkari og Guð er óneitanlega sýnilegri. Hér birtist dularfullur riddari á hvítum hesti í fylkingarbrjósti hersins þegar minnst varir (11. 8). Veikindin sem draga Antíokkus IV til dauða eru líka mun skýrar skrifuð á reikning Drottins. Og lýst af umtalsvert meiri meinfýsni:

Dómur himinsins var sannarlega með í þeirri för. Konungur sagði nefnilega í drambi sínu: „Ég skal gera Jerúsalem að fjöldagröf Gyðinga um leið og ég kem þangað.“ En Guð Ísraels, sem er alskyggn Drottinn, laust hann ósýnilegri og ólæknandi meinsemd. Hafði konungur vart sleppt þessum orðum þegar hann gat tæpast af sér borið fyrir iðrakvölum og innantökum. … Þótt hann væri enn á lífi skriðu ormar úr augum hins óguðlega og holdið leystist af honum með mikilli þjáningu og kvöl. Fnykurinn sem lagði af rotnandi holdi hans varð hernum óbærilegur. Litlu fyrr hafði hann talið sig geta náð til stjarna himinsins. Nú gat enginn borið hann vegna daunsins sem af honum lagði. (9. 4–10)


Don’t mess with da God!


Gróteskar lýsingar eru ófáar. Hér er hetjudauði öldungsins Rasís:


… þar sem hersveitin var að ryðjast inn um dyrnar stökk hann óttalaus upp á virkismúrinn og varpaði sér djarfur ofan á mannfjöldann fyrir neðan … stóð hann upp og hljóp í gegnum mannþyrpinguna, þótt blóðið rynni í lækjum og sárin væru mikil, og nam staðar uppi á þverhníptum hamri. Þo að honum væri næstum blætt út dró hann sjálfur innyflin út, tvíhenti þau og varpaði þeim á mannfjöldann. Ákallaði hann Drottinn lífs og anda og bað hann að gefa sér það að nýju sem hann nú missti. Með þessum hætti lét hann lífið. (14. 43–46)


Bókinni lýkur með sigri Júdasar og borgina helgu í höndum Gyðinga. 


Þetta er að mörgu leyti dæmigerður „sequel“. Meira ofbeldi, hástemmdari tónn, en innihaldið a.m.k. ekki meira en í fyrirrennaranum.

Vel þess virði samt fyrir unnendur hasars.


6.18.2014

Fyrsta Makkabeabók


Sjálfshjálparbók handa hræddri þjóð

Textinn (á ensku – apókrífu ritin eru ekki á íslensku á netinu)
Kynning

Í þessari sögubók segir frá sjálfstæðis- og sjálfsmyndarbaráttu Gyðinga í selevkídaríkinu, sem varð til þegar heimsveldi Alexanders mikla liðaðist í sundur að honum látnum.

Þetta er kunnuglegur þráður sem hér er spunninn. Gyðingar í stríði við nágranna sína og stórveldi sem ráða þeim í raun. En ekki síður við undanvillinga úr eigin röðum. 

Eins og áður lyktar flestum bardaganna með frækilegum sigrum hinna útvöldu, enda heitið á heillakarlinn í himninum. Hvort sem það er Júdas Makkabeus eða bræður hans Jóhannes og Símon sem stýra liðinu, oftast gegn ofurefli heiðingja.

Ýmislegt hefur þó breyst í heiminum frá því fyrstu stríðin voru háð, svona 1400 f.kr, þangað til Júdas Makkabeus fær Guð með sér í lið til að stöðva menningarlega kúgun Selevkídakóngsins Antíokkusar fjórða á annarri öld f. kr.

Hér er til að mynda talað mikið um stríðsvélar, umsátursturna og allskyns stórvirk tól sem bronsaldarmenn réðu ekki við. Og í einni af lykilorrustunum koma fílar í fyrsta sinn við sögu í biblísku stríði. Svalt.

Það sem setur allt í bál og brand er síðan eithvert nútímalegasta deiluefni sem um getur.

Þetta var nefnilega ekki síst fjölmenningarstríð.

Þó Selevkídaveldið væri víðfeðmt var rótarstaða menningarinnar hellensk. Þannig voru grísk áhrif sífellt að verða meira áberandi og aðþrengjandi fyrir þá sem vildu lifa gyðinglegu lífi.

Margir Ísraelar höfðu ekkert við þetta að athuga, jafnvel ekki að spóka sig naktir í nýbyggðum íþróttamannvirkjum að hellenskum hætti. Verst hvað sáttmálinn við Guð var’ sýnilegur við svoleiðis kringumstæður:

Byggðu þeir íþróttaleikvang í Jerúsalem að heiðinni fyrirmynd, létu gera sér forhúð og gerðust fráhverfir sáttmálanum heilaga. (1.14–15)

Já, blessaður rasisminn getur verið driffjöður í fegrunarlækningum. 

Það sauð samt ekki upp úr fyrr en Antíokkus IV rændi musterið, setti setulið í Jerúsalem og bannaði trú, rit og siði Gyðinga, sem og allra annarra. Allir skyldu semja sig að sið hinna ríkjandi. 

Það er aldrei gott plan.

Hinn rétttrúaði Mattatias og hans fólk hefur andóf, í fyrstu aðallega gegn undanvillingum í eigin röðum, drepa þá sem tilbiðja aðra guði, umskera drengi sem þeir klófesta. En sonur hans, Júdas Makkabeus, tekur upp keflið og uppreisnin hefst fyrir alvöru. 

Allt eru þetta augljóslega hryðjuverkamenn.

Það er svo sem óþarfi að reka gang mála í þessum stríðum í smáatriðum. Þau eru æsileg og frækileg og skelfileg og ógeðsleg eins og öll stríð. Orustur og umsátur, borgir brenndar og rændar af miklu kappi. Auk þess er flækjan á köflum allflókin, enda eru samhliða þessu í gangi allskyns skærur milli Selevkída og Ptólemaja (egypta), fyrir utan öll innanflokksátökin. Og svo er kominn nýr krakki í bekkinn:

Orðstír Rómverja barst Júdasi til eyrna. Var mikill herstyrkur þeirra rómaður og af því látið hve góðgjarnir þeir væru öllum bandamönnum sínum, þeir veittu sérhverjum nauðleitarmanni vináttu sína ... (8. 1)

Það er nefnilega það. Júdas og félagar ákveða að gera samkomulag við þessa spennandi og góðgjörnu nýliða, og reyndar Spartverja líka. Og merkilegt nokk þá eru bæði þessi veldi meira en til í að vera vinir þessarar sérvitru smáþjóðar. 

Svona svara Rómverjar t.d. sendimanni Makkabea:

Vel vegni Rómverjum og þjóð Gyðinga til sjós og lands um aldur og ævi. Sverð og óvinir séu þeim fjarri. En beri ófrið fyrr að höndum Rómar eða einhvers bandamanns Rómverja ...einhversstaðar í ríki þeirra þá skal þjóð Gyðinga veita afdráttarlausan stuðning eftir því sem aðstæður krefja. ... Hið sama skal gilda ef ófrið ber fyrr að höndum þjóðar Gyðinga ... (8. 23–27)

En það eru ekki bara fjarlæg stórveldi sem vilja vera í bandalagi með okkar mönnum. Hinar stríðandi fylkingar í glímunni um eftirhreytur Alexandersveldisins eru líka æstar í að hafa þá í sínu liði. Stór hluti bókarinnar eru hinar ýmsu vinabeiðnir og svör við þeim. Hér er t.d. bréf til Jónatans frá Alexander, sonar hins hataða Antíokkusar IV:

„Vér höfum frétt að þú sért hinn mesti kappi og og þess verður að vera vinur vor. Vér höfum því í dag skipað þig æðsta prest þjóðar þinnar og veitt þér að kallast vinur konungs. Ætlum vér þér að annast málefni vor og varðveita vináttu vora.“

Einnig sendi hann Jónatan purpuraskikkju og gullkórónu. (10. 19–20)

Það er eins og Gyðingar hafi verið í einhverskonar lykilstöðu eftir frækilega sigra Júdasar M. Stríðsherrar beggja vegna allra víglína vilja vera vinir þeirra, bjóða þeim allskyns fríðindi, frelsi til sinnar sérvisku, skattfrelsi, jú neim it. Margt af þessu er reyndar svikið jafnharðan, en þó ekki loforð Rómar og Spörtu sem aldrei reynir reyndar á.

Bókinni lýkur snögglega á því að valdafíkinn Gyðingur drepur Símon og tvo sona hans, í tilraun til að hrifsa völdin í sínar hendur. Hin útvalda þjóð heldur áfram að vera eins og sjúk fjölskylda: sameinuð út á við en sjálfri sér sundurþykk.

Í gegnum þetta hegða Gyðingarnir sér eins og dæmigerð smáþjóð með ofvaxna trú á mikilvægi sitt. Þeir veita ýmsum, en er auðvitað fyrst og fremst umhugað að halda sinni menningu lifandi - sem reynslan kennir þeim að er ævinlega og alltaf tvísýnt um, þrátt fyrir hina himnesku forgjöf.