10.13.2005

Viðtalsbil

Það hefur verið svolítið uppihald í þessum pistlum, og biðst ég afsökunar á því. Er kominn lengra með að lesa, en hef verið á kafi í öðrum skrifum og ekki tímt tíma í þetta verkefni. Það stendur hinsvegar ekki til að hætta og útlit fyrir að bráðum rofi til.

Hef bætt við nokkrum krækjum, tvær fúndametalistakirkjur, Krossinn og Kefas og svo álíka einstrengingslega og húmorslausa trúleysingja, Vantrú.is. Einnig Kaþólsku kirkjuna á Íslandi og síðu um gyðingdóm, að ógleymdu Deus Ex Cinema.

Einnig bætti ég inn þremur krækjum við hverja grein, til þægindaauka fyrir lesendur. Ein krækjan leiðir að texta viðkomandi bókar á Íslensku, önnur inn á Bible Gateway þar sem hægt er að bera saman ólíkar þýðingar. Síðast en ekki síst er krækja inn á síðu um viðkomandi bók á Wikipedia.

Ég er svoddan fróðleiksnörd að ég var ekki fyrr byrjaður en ég fór að viða að mér ítarefni. Keypti t.d. Apókrífu bækurnar og velti nú fyrir mér hvort ég geri þeim skil áður en ég ræðst á nýja testamentið, eða geymi þær þar til síðast. Um daginn fjárfesti ég svo í Nýjatestamentisþýðingu Odds Gottskálkssonar og er að gæla við þá hugmynd að nota hana sem aðaltexta. Sennilega ekki samt.

Svo keypti ég mér tvær hækjur. Og hef þegar hent þeim báðum. Kraftaverk!

Isaac Asimov er mikil hamhleypa til skrifta og hefur farið yfir Biblíuna með ströngu auga staðreyndapostulans. Asimov's Guide to the Bible er mikill doðrantur og á köflum gagnlegur, en svolítið eins og að hafa Björn Margeir mínus húmorinn í höndunum.

The Bible for Dummies er eins og nafnið bendir til. Einstaka gagnlegir fróðleiksmolar, en pakkað inn í svo aumingjagóða froðu að manni verður illt. Svo er bókin dálítið upptekin af því að skýra burt allt sem er stuðandi í ritunum, og eins og nærri má geta á sú nálgun lítt upp á pallborð þess sem hér skrifar.

Eitt sem ég lærði af þeirri bók er ágætt dæmi um hvernig hægt er að lesa hluti í texta í stað þess að lesa þá úr honum.

Þið munið eftir setningunni góðu "þú skalt ekki sjóða kið í mjólk móður sinnar". Sérkennileg skilaboð kannski, en engu að síður nokkuð afdráttarlaus og auðvelt að hlýða þeim. Kemur svo ekki á daginn að það er þessi lífsregla sem liggur til grundvallar því að gyðingar borða ekki saman kjötafurðir og mjólkurafurðir af neinu tagi.

Hvernig þeir láta þá túlkun ganga upp er mér óskiljanlegt. Sumir textar eru greinilega til þess fallnir að álykta vítt útfrá þeim. Dæmisögur eru til dæmis svoleiðis. En kannski ekki fullkomlega konkret lagagreinar. Og þó svo það sé svigrúm til að gefa sér að þessi regla gefi vísbendingu um fleira en kiðlinga og geitamjólk, þá virðist mér þessi útfærsla bannsins vera algerlega fráleit.

Reyndar er það það kannski uppsúmmeringin af lestri þessara fyrstu bóka. Það er erfitt að sjá í þeim lærdóma sem hægt er að nýta sér, eða lífsreglur sem eftirsóknarvert er að fara eftir. Þeim mun meira af blóði, mannhatri, kvenfyrirlitningu og reglum sem jafnvel kristnasta fólki dytti aldrei í hug að fara eftir. Vissulega magnaðar sögur, en það sem þó er í samræmi við það sem við teljum gott eru það sem Þórbergur kallaði "Tómar selvfölgeligheðer".

Enn er slatti eftir af þeim hluta gamlatestamentisins sem rekur söguna. Það er líklega ekki fyrr en með spámönnunum sem annað hljóð fer að færast í strokkinn.

8 ummæli:

Nafnlaus sagði...

" svo álíka einstrengingslega og húmorslausa trúleysingja,"

Í gvuðanna bænum, þetta er svo glórulaus fullyrðing að það hálfa væri nóg.

Nafnlaus sagði...

Aldrei húmorslausir, það er bara lygi eða einskær fáfræði.

Varríus sagði...

Fyrirgefiði...

kannski ekki húmorslausir.

hvernig væri "...einstrengingslega og hörundsára trúleysingja..." ?

Nafnlaus sagði...

Hvernig væri að segja bara: "trúleysingja" ? ;-)

Nafnlaus sagði...

Eitt þarf jú ekki að útiloka annað í þessu sambandi. :-)

Nafnlaus sagði...

Et tu Varrius?

Við á þig!

Nafnlaus sagði...

Þetta er orðið frekar langt viðtalsbil, er það ekki? Minnir meira á viðtalsfrí eða viðtalsfall :-)

Nafnlaus sagði...

Viðtals-svefn/dvali